Ungur íslenskur frumkvöðull safnar nú á Karolina Fund fyrir nýju smáforriti. Smáforritið á að auðvelda hundaeigendum að finna leikfélaga fyrir hunda sína auk þess sem það á að virkja aðra hundaeigendur skyldu þeir verða fyrir því óláni að týna hundunum sínum. Guðfinna Kristinsdóttir, ungur háskólanemi og einn af stjórnendum hins afar virka og fjölmenna Facebook-hóps Hundasamfélagið, segist hafa gengið með smáforritið í maganum um nokkurn tíma. „Ég er stjórnandi á Hundasamfélaginu og þar fáum við oft tilkynningar um týnda hunda, segir Guðfinna. „Ég hef t.d. fylgst vel með undanfarna daga og það eru að koma tvær til þrjár tilkynningar inn á Facebook-hópinn okkar á dag um hunda sem hafa týnst.“

Allsherjarsmáforrit fyrir hundaeigendur Hugmyndin er í raun ósköp einföld. Hver notandi getur sett inn upplýsingar um hundinn sinn. Týnist hann verður svo hægt að senda tilkynningu í gegnum smáforritið. Hana fá allir þeir sem eru með smáforritið í símanum sínum í ákveðnum radíus og geta þeir því aðstoðað við leitina eða haft augun opin. „Það er mjög dýrt spaug að þurfa að leysa hundinn sinn út frá hundafangaranum og því væri frábært að geta virkjað nærumhverfið þegar hundar týnast. Hægt verður að setja inn upplýsingar um hundinn, t.d. hvort hann sé mannelskur eða hvort hann bíti sé hann hræddur. Þetta minnkar stressið við það að týna hundinum sínum.“ Þetta er þó bara grunnhugmyndin og í raun stefnir Guðfinna á að bæta við fjölmörgum möguleikum. Þannig sér hún fyrir sér að fyrirtæki getið boðið dýraeigendum afslætti í gegnum smáforritið, hægt verði að finna yfirlit yfir hentugar gönguleiðir og lausagöngusvæði hunda og ýmislegt fleira. Það merkilegasta er þó án efa að með smáforritinu eiga hundaeigendur að geta fundið leikfélaga fyrir hundana sína. „Þetta er svona svipað og Tinder,“ útskýrir Guðfinna. „Það verður hægt að ýta til hægri eða vinstri eftir því hvort að hundurinn passi þínum hund. Eins og t.d. minn hundur. Hann er stór en verður hræddur í kringum aðra stóra hunda. Ég myndi því leita að minni hundum fyrir hann til þess að leika við.“
Grein af Vísi.is: http://www.visir.is/islenskur-frumkvodull-throar-tinder-fyrir-hunda/article/2015151119900