Halldóra Lind og Heiðrún Klara, hundaatferlisfræðingar hjá HundaAkademíunni, skrifuðu því þessa grein til að gera hundaeigendur tilbúna fyrir þennan skemmtilega, en oft erfiða, tíma. Hræðsla við flugelda er nokkuð algeng meðal hunda og annarra dýra. Þetta getur skyggt á hátíðahöld gæludýraeigenda, enda geta hljóðin, ljósin og lyktin frá flugeldunum orsakað mikinn kvíða og hræðslu hjá dýrunum okkar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það má gera ýmislegt til að hjálpa hundunum okkar í gegnum þetta tímabil. Hundar sem hafa fengið góða umhverfisþjálfun frá byrjun og eru vanir allskonar hljóðum í umhverfinu eru síður líklegir til að verða hræddir í kringum áramótin en þeir sem ekki eru vanir.
Það sem ræktandinn gerir skiptir máli
Félagsmótunarskeið hvolpsins er á aldursbilinu 3-12 vikna. Á þessu tímabili þarf hundurinn að upplifa allt sem á að teljast eðlilegt í lífinu. Ræktandi ber mikla ábyrgð á að hvolpurinn mótist vel og því þarf hann markvisst að venja hann við ýmisleg áreiti í hverri viku, frá 3-4 vikna aldri, þar til nýr eigandi tekur við hvolpinum. Það sem þarf að venja hundinn við er mismunandi hljóð, lykt, fólk, hreyfingar, dýr, börn, umhverfi (bæði inni og úti) og mismunandi undirlög. Mælt er með því að ræktandi spili flugeldahljóð fyrir hvolpa öðru hvoru á félagsmótunarskeiðinu. Ef hvolpurinn fær ekki nægilega örvun á félagsmótunarskeiðinu eru miklar líkur á að áramótin sem og annað áreiti verði erfitt í framtíðinni. Hvolpar sem eru aldir upp í fjárhúsum eða eru frá svokallaðri hvolpaframleiðslu (e. puppymill) geta átt erfiðara með að aðlagast lífinu. Hvolpaframleiðsla einkennist af mörgum hvolpum sem eru til sölu á hverjum tíma en þeir eru vistaðir í stíum/búrum) og fá mjög litla örvun. Þeir geta verið hræddari við hljóð, ókunnuga eða aðra hunda og átt erfiðara með að vera einir heima. Hvolpar sem búa inni á heimili mótast á náttúrulegan hátt með því að heyra umgang í fólki, í sjónvarpinu/útvarpinu og með því að hitta fólk og börn sem fá að klappa og leika við hvolpana. Það skiptir því miklu máli að hvolpakaupendur spyrji ræktendur spjörunum úr og fái að vita hvað hvolpurinn fékk að upplifa á þessu tímabili.
Það þarf að venja hunda við flugeldahljóðin
Það tekur tíma að venja hund við flugeldahljóð og því sem þeim fylgir og því er gott að byrja 2-6 mánuðum fyrir áramótin eða eins fljótt og hægt er. Eins og í mörgu öðru gilda þó spakmælin um betra seint en aldrei. Til að undirbúa hundinn skaltu útbúa hljóð og spila þau öðru hvoru. Gott er að venja hundinn við hljóðin smám saman, í litlum skömmtum. Byrjaðu með hljóðin mjög lágt stillt, sem hann þolir vel og auktu við þau smátt og smátt. Það er hægt að kaupa geisladiska með þessum hljóðum en einnig er hægt að finna ókeypis upptökur á netinu til að nota við þessa þjálfun. Á síðunni Flugeldahljóð.com má finna mikið af flugeldahljóðum sem eru tilvalin til að venja hundana við. Annað ráð til að venja hundinn við flugeldahljóð er að sprengja blöðrur eða skella saman spýtum í góðri fjarlægð frá hundinum, öðru hvoru. Ef hundurinn bregst við er mikilvægt að hunsa hann alveg. Ef hann verður hræddur er hljóðið of nálægt eða of hátt. Þá skaltu færa þig fjær hundinum og/eða nota lágværari hljóð til að byrja með. Svo getur þú unnið þig smám saman nær og upp í styrkleika.Tengdu hljóð og hvelli við eitthvað skemmtilegt
Á meðan flugeldahljóðin eru spiluð skaltu gera eitthvað skemmtilegt með hundinum eða gefa honum eitthvað sem honum finnst gott. Á þann hátt tengjum við hljóðin við eitthvað sem er ánægjulegt. Hér koma nokkrar hugmyndir: Sprengdu blöðrur/skelltu saman spýtum í næsta herbergi og eftir hvern hvell fær hundurinn nammi eða leik. Settu nokkra gaffla í stóran pott og nammi ofan í hann. Leyfðu hundinum að ná í nammið á meðan er hann að venjast hljóðunum. Ef hann þorir það ekki út af hljóðunum getur þú prófað fyrst með einum gaffli á disk. Þú getur notast við hvað sem þér dettur í hug, svo lengi sem það koma einhver hljóð úr því.
Gerðu æfingar í göngutúrnum
Íslendingar eru sprengjuóðir. Það er mjög óhentugt fyrir þjálfun hundsins, þegar flugeldum er skotið upp í tíma og ótíma, fyrir og kringum áramót. Oft er flugeldum skotið upp þegar hundar eru í göngutúr. Það veldur oft hræðslu hjá hundum sem getur þróast yfir í erfiða flugeldahræðslu. Vertu alltaf með nammi eða reipitogsdót við höndina. Þegar þið heyrið flugeldahljóð, jafnvel þó hundinum sé alveg sama, þá fær hann verðlaunin og jafnvel mikið af þeim. Ef hann fær nammi eða leik í hvert skipti sem hann heyrir hvellina, byrjar hann að tengja þessi hljóð við eitthvað skemmtilegt sem minnkar líkurnar á hræðslu. Ef þú ert í hverfi þar sem mikið er skotið upp, getur verið gott að sleppa göngutúrum á kvöldin og keyra frekar á rólegri stað til að viðra hundinn. Það má líka fara út í stærri göngutúr yfir daginn og vera minna úti á kvöldin. Vertu þá frekar inni og leyfðu hundinum að dunda sér við heilaverkefni eða þefleiki. Ef þú ert með hund sem nú þegar hefur sýnt hræðslu við ýmislegt, er lítill í sér og þarf oft tíma til að venjast nýju áreiti, eru góðar líkur á að það verði eins með flugeldana. Þá getur verið ráð að hreinlega sleppa innanbæjargöngutúrum eftir myrkur og keyra út fyrir bæinn til að labba. Það má einnig athuga með pössun í sveit þar sem er ekki skotið upp flugeldum.Undirbúningur fyrir gamlárskvöld
Farið út í dagsbirtu. Farið í góða göngu og hreyfðu hundinn vel, þar sem hundurinn fær að hlaupa um, þefa og þar sem hann fær mikla andlega örvun. Það er hægt að henda nammi í grasið og láta hann leita í að minnsta kosti korter í einu. Önnur góð hugmynd er að skipuleggja hitting með uppáhalds leikfélögunum svo hundurinn fái virkilega mikla útrás og gleði. Gerið hvað sem ykkur dettur í hug sem þreytir hundinn andlega og líkamlega. Þá þurfið þið ekki að fara út um kvöldið í göngutúr og hundurinn er rólegri inni þar sem hann er vel þreyttur.Gamlárskvöld og þrettándinn
Reynið að halda hundinum frá mestu látunum. Ekki taka hann með á brennur eða út að skjóta flugeldum. Það er ekki góð umhverfisþjálfun. Hundurinn gæti fengið bakslag og orðið enn hræddari. Sumir hundar sýna ekki hræðsluna út á við, heldur líta þeir út fyrir að vera rólegir og að allt sé í góðu hjá þeim. Síðan kemur í ljós um næstu áramót að hundurinn sýnir kvíðamerki við flugelda sem fer versnandi með hverjum áramótum. Forðist að láta hundinn vera einan heima á gamlárskvöld. Hundar eru öruggari nálægt fólkinu sínu og við viljum ekki að hann sé einn heima ef hann skyldi bregðast illa við öllum látunum. Búum til notalegar aðstæður fyrir hundinn Það er gott að útbúa rólegt afdrep fyrir hundinn. Hafið alla glugga lokaða þar sem lyktin af flugeldunum hræðir suma hunda. Dragið fyrir gluggana og hafið ljósin kveikt svo ljós frá flugeldunum verði ekki eins áberandi. Hafið hátt stillta tónlist til að dempa lætin fyrir utan. Einnig er hægt að nota róandi tónlist fyrir hunda. Á Youtube er hægt að finna ,,calming music for dogs“. Gefið hundinum verkefni að dunda við svo athygli hans beinist annað en að látunum. Bein, leikir, æfingar, fyllt kong og fleira.Gefið hundinum vel að borða
Saddur hundur er rólegri hundur. Það er flott að gefa auka nammi í leik og þjálfun svo hann fái andlega örvun og sé upptekinn í leiðinni.Ekki ýta undir hræðsluna
Við þurfum að gæta þess vel hvernig við högum okkur í aðstæðum þar sem hundarnir okkar gætu orðið hræddir. Hundar eru mjög næmir á líðan okkar og það er auðvelt að ýta undir hræðslu hjá þeim. Ef við erum spennt og hrædd getur það yfirfærst á hundinn. Ef þú sérð að hundinum þínum bregður við lætin skaltu ekki tala til hans í vorkunnartón heldur láta eins og ekkert sé.