Hundurinn Tinna var líklegast á allra vörum í byrjun árs, en hún slapp úr pössun rétt fyrir áramót og var hennar leitað í meira en þrjár vikur. Ung kona fann Tinnu loks 23.jan á göngu, Tinna var með 10kg stein yfir höfðinu og aðkoman benti til þess að henni hefur verið komið fyrir af mannavöldum.

Tinna er ekki eina dýrið sem hefur fundist í svipuðum kringumstæðum á Suðurnesjunum. Árið 2012 fannst hundur á heiðinni milli Keflavíkur og Sandgerðis. Hjón gengu fram á svartan ruslapoka sem hafði að geyma hundshræ, en þungum stein hafði verið komið fyrir ofan á höfði hundsins. Varðstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum sagði að það væri ljóst að hræið hefði verið þarna í nokkurn tíma, líklega væri það í mánuðum talið. Það er hægt að lesa um málið betur hér. Við vörum þó við mynd neðst í fréttinni, þar sem höfuðkúpa hundsins sést.

En einnig hafa tveir kattaeigendur sett sig í samband við Andreu sem hafa misst kettina sína á sama máta, þar sem stórum steini er komið fyrir á höfði dýrsins.

Því leitum við eftir upplýsingum hvort fleiri dýr hafi fundist í svipuðu ásigkomulagi. Vinsamlegast sendið upplýsingar á andrea@23.is.


Guðfinna á Dandie Dinmont Terrier rakkann Watson. Hún er hönnuður, situr í stjórn Félags ábyrgra hundaeiganda og Dýraverndarsambands Íslands. Hún lærði um hegðun týndra dýra hjá Missing Animal Response Network. Nú hjálpar hún til við að finna týnda hunda, býr til auglýsingar og ráðleggur við leitir, einnig er hún að vinna að þróun smáforrits fyrir týnd dýr.