Neyðarsímanúmer dýralækna (utan venjulegra opnunartíma): Reykjavík: Algengast er að hægt sé að ná í dýralækni í síma 860-2211 Það er þó örlítið breytilegt eftir dögum (nákvæmari upplýsingar eru í linknum hér neðst). Hér er hægt að finna neyðarnúmer dýralækna á öllu landinu: http://mast.is/dyraheilbrigdi/dyralaeknar/vaktsimi-dyralaekna/ Hafðu strax samband við dýralækni ef eitt eða fleiri eftirtalinna atriða eiga við:
- Ef blóð er í hægðum eða ælu hundsins. Þegar það er blóð í ælu er hún oft dökkbrún, svo hún þarf ekki að vera rauð þótt það sé blóð í henni.
- Ef hundurinn er slappur eða ólíkur sér.
- Ef hundurinn er með hita.
- Ef hundurinn hefur ekki drukkið eða borðað lengi.
Ef ekkert ofantalinna atriða eiga við er gott að fara eftir þessu:
Ef hundurinn er mjög slæmur, ælir reglulega eða er með mjög slæman niðurgang skal byrja á að gefa hundinum fljótandi fæði. Hundar missa hratt vökva í líkamanum við magapestir svo mikilvægt er að gefa þeim nægan vökva. Það er einnig gott að gefa hundinum ab-mjólk, sem inniheldur góða gerla fyrir meltingu hundsins. Ég mæli með því fyrir alla að eiga Pro-kolin eða Prolac inn í skáp. Það stoppar oft magapestir strax. Þegar hundurinn er kominn yfir það versta skal gefa venjulegt sjúkrafóður (þetta getur líka verið fyrsta skref ef hundurinn er ekki mjög slæmur í maganum). Það er mikilvægt að gefa lítið í einu, oft yfir daginn. Það er hægt að kaupa tilbúið sjúkrafóður hjá dýralækni eða búa það til sjálfur. Það sem er gott að gefa er t.d. soðinn kjúklingur, soðin hrísgrjón (hvít eða gróf), kotasæla, ORA-fiskibollur í dós, pasta og ab-mjólk. Það sem ég geri oft sjálf er að blanda saman kjúkling, hrísgrjónum og kotasælu og bý til góðan graut úr því sem hundunum finnst mjög góður. Þó finnst mér i/d dósamatur frá Hill’s alltaf virka best.
Til viðmiðunar um skammtastærð þá gef ég mínum 16 kílóa hundum eina fulla matskeið af mat á tveggja tíma fresti. Þetta skaltu gefa þar til hundurinn er orðinn góður í maganum. Oft er gott að miða við um 2-3 daga á þessu fóðri, að því gefnu að hundurinn hætti strax að æla/vera með niðurgang. Svo má byrja að blanda gamla mat hundsins smám saman við fóðrið. Ef hundurinn er á þurrfóðri er gott að hella sjóðandi vatni yfir matinn til að bleyta hann upp og gera hann auðmeltanlegri. Takið nokkra daga í að minnka sjúkrafóðrið og auka við gamla fóðrið. Ef hundurinn fær harðlífi gætir þú verið að gefa of mikið af hrísgrjónum. Fylgist vel með hægðum og hitastigi hundsins. Ef hundurinn skánar ekki í maganum þrátt fyrir 2-3 daga á sjúkrafóðri skal hafa samband við dýralækni. Í stuttu máli:
- Mælið hitastig hundins. Ef með hita, blóð er í hægðum eða hundurinn er slappur, hafið samband við dýralækni.
- Ef mjög slæmur í maganum, gefa fljótandi fæði.
- Gefa sjúkrafóður í litlum skömmtum, oft yfir daginn.
- Byrja smám saman að blanda gamla fóðri hundsins við sjúkrafóðrið.
- Fylgjast með hægðum hundsins og hitastigi hans, hafið samband við dýralækni ef hann versnar.